Bataskólinn er í húsnæði menntavísindasviðs HÍ.

Batamiðað nám

Fyrir hverja er skólinn?

Bataskólinn er hugsaður fyrst og fremst fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem glíma við geðrænar áskoranir en hann er einnig opinn aðstandendum og starfsfólki á heilbrigðis- og velferðarsviði. Ekki þarf neina tilvísun eða greiningu til að komast í bataskólann, einstaklingar meta sjálfir hvort þeir eiga erindi og sækja um sjálfir með því að senda póst á bataskoli@gmail.com.

Hvernig virkar þetta?

Þú skráir þig í nám með því að smella á hnappinn „Sækja um” efst í hægra horni á vefsíðu skólans og fyllir út form þar sem beðið er um nafn, kennitölu, símanúmer og netfang. Við höfum svo samband við þig og bjóðum þér viðtal þar sem þú getur valið þau námskeið sem þú vilt sitja, færð frekari upplýsingar um skólann og námið og færð tækifæri til að spyrja spurninga. Námskeiðin eru kennd milli kl. 13:20 og 15:20 á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum í stofu H-001 í húsnæði menntavísindasviðs Hí. Þau sem velja að sitja öll námskeiðin klára yfirleitt námið á 2 önnum eða um það bil 7 mánuðum en það má líka fara hægar í gegnum námið og taka færri námskeið í einu.

Hvaðan kemur hugmyndin að skólanum?

Bataskólinn byggir á svo kallaðri batahugmyndafræði og eru sambærilegir skólar (e. recovery college) starfræktir víða um heim. Fyrstu bataskólarnir voru stofnaðir í Bandaríkjunum í kringum 1990 og á næstu áratugum voru sambærilegir skólar stofnaðir víða um heim og finnast þeir meðal annars á norðurlöndunum, Bretlandi, Írlandi, Kanada, Ástralíu, Japan og víðar. Bataskóli Íslands er byggður upp af fyrirmynd Nottingham Recovery College og er starfræktur í samstarfi við hann.

Bataskólar sinna fullorðinsfræðslu um efni sem tengist geðheilsu en þar fer ekki fram nein greining eða meðferð á geðröskunum. Áhersla er á nám en ekki meðferð og að hver og einn einstaklingur læri aðferðir sem henta honum til að vinna að eigin bataferli. Hugmyndafræðin sem skólarnir byggja á gengur út frá því að ekki er alltaf möguleiki á að losna undan öllum einkennum geðraskana en að alltaf er möguleiki á að bæta lífsgæðin og öðlast merkingabært líf með eða án einkenna.

Hverjir standa á bak við skólann?

Bataskólinn var stofnaður árið 2017 sem tilraunaverkefni til 3ja ára sem Reykjavíkurborg og Geðhjálp stóðu að. Fleiri samstarfsaðilar sem komu að stofnun og starfsemi skólans eru Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landspítali háskólasjúkrahús og samráðsvettvangur geðúrræða á Höfuðborgarsvæðinu. Tilraunaverkefnið gekk vel og starfsemi skólans hefur haldið áfram og er hann hluti af virkniúrræðum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Stjórn bataskólans skipa fulltrúar frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Geðhjálp og Reykjavíkurborg. Fyrstu árin var Bataskólinn staðsettur í húsnæði Námsflokka Reykjavíkur á Suðurlandsbraut en í dag er hann í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Stakkahlíð 1.